Fyrir utan galla í hugbúnaðinum þá er ég mjög ánægður með T-Balancerinn. Hann er núna búin að vera 1 viku í tölvunni hjá mér og ég hef ekkert þurft að hugsa um hann eftir að ég stillti hann í byrjun. Hávaðinn í tölvunni hefur lækkað mjög mikið, í raun það mikið að konan er hætt að kvarta undan henni ;)

Ég mæli með T-Balancernum fyrir þá sem vilja lækka hávaðann í tölvunni hjá sér og eru ekki að leita 5¼” viftustýringu til að stýra handvirkt heldur vilja láta tölvuna sjá um þetta sjálfa.